sunnudagur, 10. desember 2006

Bloggið sem hvefur

Merkilegt. Í gærkveldi bloggaði ég alveg heilmikið m.a. um Londonferðina - sem var btw alveg brilliant, um myndina Holiday - mest rómó gaman mynd ársins. Jólahlaðborðin og svínakjötið sem ég hef bara mikið óþol fyrir.

Hvað um það... bloggið vildi ekki birtast. Því verður þetta bara stutt.

Alveg brjálað að gera... Bond á morgun með Lísu skvisu, tvennir fundi eftir vinnu á miðvikudag og kaffihús, æfing fyrir jólaballið á fimmtudag... Hugsa að ég klári jólaverslunina á föstudagskvöld og gangi frá dæminu á laugardag.

2 ummæli:

Ellan sagði...

Var farin að sakna þín gella:)

Oh ekki segja þetta með jólagjafirnar, ég er ekki enn byrjuð... fór á sunnudag að kaupa jólagjafir en keypti bara föt á mig í staðinn:)

Anna sagði...

Dugleg stelpa!
Ég er bara búin að kaupa 3 gjafir, byrjuð að föndra 2 (eða stelpurnar réttara sagt) og svo hugsa um hinar. Ætla að skella mér í rallýgírinn um helgina og skvera af restina af gjöfunum enda búin að koma börnum í næturgistingu.
Ég er reyndar búin að aðstoða bóndann við að kaupa jólagjöfina til mín í ár. Hún er fullkomin, geggjuð leðurstígvel sem smellpassa.