föstudagur, 15. desember 2006

Hor í nös

Búin að vera heima í dag með hor í nös og kvef, smá hita. Verð að vera orðin góð fyrir sunnudag en þá verð ég að stjórna jólaballi fyrir samstarfsmenn mína og börn þeirra. Rokna stuð. Reyndar verða þetta tvö böll. Aðsóknin var svo mikil.
Hringdi í RUV í dag og afgreiddi jólakveðjuna fyrir ömmu á Hrafnistu. Ég fæ alltaf kökk í hálsin þegar að kveðjan er lesin upp fyrir mig, þ.e. kveðjan sem var send í fyrra. þetta gerist á hverju ári. Líklegast stafar þetta af því að ég sakna afa Höskuldar. Hann passaði alltaf uppá að ég sendi kveðjuna. Nú verð ég að passa uppá þetta sjálf - stór stelpa ;-)
Guðsonurinn var að keppa í skriðsundi í dag í 25 metra laug. Er afar stolt af drengnum. Enda er hann bara 5 ára síðan í ágúst.
Maddaman er níræð á morgun - Hvet alla stuðningsmenn maddömunar til að skella sér í kaffi að Hverfisgötu 33 á morgun milli 14-17.

Engin ummæli: