fimmtudagur, 30. nóvember 2006

Dagurinn í dag...

... byrjaði ekki á því að fara í ræktina. Jamm því miður fyrir mig. En hægri ökklinn og ristin eru enn ekki alveg komin í lag eftir fallið um daginn. Er á því að slen síðustu daga sé vegna þess að ég hef ekki fengið nóga hreyfingu. Verð að bæta úr því.
Á leiðinni í vinnunna keyrði ég framhjá myndatökumanni á Elliðaárbrúnni. Þetta var rétt rúmlega átta. Ennþá myrkur. Maðurinn var náttúrulega ekki með nein endurskinsmerki og því í stórhættu þar sem að hann var einnig svartklæddur. Eiga nú ekki fullorðnir að vera fyrirmynd þeirra sem yngri eru?
Dagurinn í dag gekk fínt. Fór á ráðstefnu eftir hádegi - voða áhugaverða - stór lýsingarorð að venju. En það hefði nú verið gaman að sjá kerfið "live".
Við í FUF-DS fórum í heimsókn til Magnúsar Stefánssonar í alþingi. MS sagði okkur frá störfum alþingis og skoðuðum við þingið. Fróðlegt. Eftir það fórum við á Café Victor.
Í kvöld haf ég svo verið að moka út úr litla herberginu - þvílíkur safnari get ég nú verið. Hendi greinilega aldrei neinu. Ástæðan fyrir tiltektinni er sú að guðdóttir foreldra minna er að koma og vera hjá mér um tíma. Gaman að vera ekki einn í slottinu.
Annars er djammhelgi framundan og það í hinni góðu borg London. Er að fara með starfsfélaga og gistum við hjá starfsfélaga í London. Huggulegt. Ætlum að sjá Kevin Spacy á sviði annaðkvöld. Hlakka mikið til enda er hann þrusu góður leikari.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

halló, var gaman í útlandinu? Langaði bara að segja þér að litla daman svaf bleyjulaus í nótt. Er orðin fullorðin. Er nú að horfa á jólasveinana.
kv frá Kvíabalanum

Nafnlaus sagði...

hey, meira blogg, kona!