Jæja, nú er mín orðin svo öflug að hún ætlar að halda úti tveimur bloggsvæðum. Annars vegar hér með mitt prívat ef svo má að orði komast og svo hitt á moggablogginu þar verður bloggað um líðandi stund. Það er strandir.blog.is - Frumlegt ekki satt. Ekki var hægt að fá Svavah eða Svava þannig að mér fannst strandir hæfa mér.
-----
Þjálfarinn var ekki ánægður með hópinn í gær. Sagðist ætla að hætta með okkur ef við tækjum okkur ekki á og pössuðum matarræðið. Við Eyjólfur ætlum að taka þessari áskorun og passa okkur eftirleiðis. Við ætlum sko ekki verða rekin frá þjálfaranum. Hann vill ekki vera áskrifandi af launum sem að hann hefur ekki unnið fyrir. Svo mergjað er það nú. Gott að fá svona spark rétt fyrir páskaeggið. ;-)
-----
Frökenin er í miklum bílahugleiðingum. Svo miklum að bílasölurnar bítast um að selja henni bíla. Einn vildi bjóða mér á rúntinn, annar bjóða fyrirtækisvexti á bílasamninginn og hinn hann bara vessgú hafðu bílinn yfir páskanna. Kostaboð. Nú er það ég sem geysist um á hvítum fák - hver segir að strákarnir eigi endilega að vera á hvítum - Ég bara spyr.
fimmtudagur, 5. apríl 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
þetta líst mér á... Ekki slæmt að fá hvítan fák til að geysast á um páskana:)
Stefni á að skoða bílamálin mín í haust, en rauða þruman stendur alltaf fyrir sínu:)
Annars óska ég þér gleðilegra páska,..,.
kv. Ella
sael paeja... ertu nokkud haett ad blogga herna megin? Guja
Skrifa ummæli