Hann getur verið grimmur en líka fallegur. Hann gefur og tekur. Verið lygn og síðan snúið sér upp í djúpa öldu. Það væri hægt að skrifa langan pistil um sjóinn. En ekki ætla ég að gera það hér. Mig langar til að votta ættingjum og vinum þeirra sem fórust er Björg Hauks ÍS hvolfdi í mynni Ísafjarðardjúp á þriðjudagskvöldið samúð mína. Þótt að ég hafi ekki þekkt Eírík eða Unnar neitt þá bregður manni alltaf og finnur til þegar að sjóslys verða. Blessuð sé minning þeirra.
Læt fylgja með þessa fallegu mynd úr Djúpinu sem að Anna vinkona tók 27. júlí í fyrra þegar að hún var að koma niður af Steingrímsfjarðarheiði.
Læt fylgja með þessa fallegu mynd úr Djúpinu sem að Anna vinkona tók 27. júlí í fyrra þegar að hún var að koma niður af Steingrímsfjarðarheiði.
1 ummæli:
Sæl mín kæra
Bara láta þig vita að maður kíkir nú stundum á bloggið þitt, alltaf gaman að fylgjast með þér. Þú kíkir í kaffi í Hafnarfjörðinn þegar við verðum flutt heim í sumar. kveðja frá Sverige Fanney og co
Skrifa ummæli