Ferðaglaði Bogmaðurinn hefur verið á faraldsfæti undanfarnar vikur. Fyrir hálfum mánuði fór ég í ferð á vegum vinnunar til Grundarfjarðar, Stykkishólms, Búðardals, Blönduós og endaði loks í Borgarnesi. Í svona ferðum leiðist mér sko alls ekki. Hitta og kynnast samstarfsfólki sínu sem er umfram allt gestrisið og hefur áhuga á því sem að ég hef til málanna að leggja. Fyrir utan það að ferðast þá hef ég mikinn áhuga á matargerð. Fór á tvo brilliant staði í ferðinni. Annars vegar á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi - Glæsilegur staður með fyrsta flokks mat og þjónustu og hinsvegar Við árbakkann á Blönduósi - Kósý kaffihús með ljúffengum mat.
Síðasta vika hefur liðið afskaplega fljótt. Enda hefur verið mikið að gera hjá minni. Hef verið á námskeiði "Njóttu þess að fljúga" hjá Icelandair - eða Finnair eins og SUF-ararnir kalla flugfélagið nú ;-) . Alveg ágætis námskeið. Kíktum í heimsókn til Flugstoða á þriðjudagskvöldið og var það afskaplega fróðlegt. Nk. þriðjudagskvöld munum við fá að fara frammí í einni af Fokker Friendship vélum Flugfélagsins og síðan verður flogið til Kaupnmannahafnar á föstudaginn - útskriftarflug.
Á fimmtudag og föstudag var komið að því að endurmennta sig. Fór á ráðstefnu og námskeið á vegum Félags um skjalastjórn. Voða gaman enda ein af mínum mentorum í faginu frá Northumbria University í Newcastle sem kom og kenndi. Heitir hún Catherine Hare og er einnig fyrrum skjalastjóri Sameinuðu þjóðanna í New York. Í gær fór ég svo með hana og mann hennar Jeff "Gullna hringinn". Var mjög gaman í þeirri ferð. Sérstaklega að sjá landið sitt með augum fólks erlendis frá.
mánudagur, 12. febrúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Var að sjá þetta fyrst núna. Hélt að Þórhildur hefði áhuga á skjalastjórn því hún hefur unnið á bókasafninu í menntaskólanum og vinnur nú á skjalasafni. Neibbs.. Hafði ekki svo mikinn áhuga :)
En æðisleg hjá þér og mikil upplifun. :)
fátt jafnast á við Finnair, stefni á að fljúga með því í sumar eða haust:)
heheheheh
Þú ert ekki verkefnalaus, frekar en fyrri daginn, Svava mín. Ég þarf að fræðast betur um þetta flugnámskeið hjá þér - ég og mín fjölskylda gætum sett saman fjöldaskráningu á eitt slíkt.
Bestu kveðjur úr Rimanum!
Halla
Skrifa ummæli