Er búin að vera alveg ómöguleg alla helgina. Hélt að Greys Anatomy ætti að hefjast aftur þann 4. jan. En nú er ég búin að komast að því þökk sé GreysAnatomyInsider að þátturinn er ekki á dagskrá ABC fyrr en 11. janúar. Hlakka mikið til.
Til að létta geðið þá hófst Boston Legal í kvöld. Alltaf jafn klikkaðslega fyndið.
The O.C. er víst að hætta eftir 4. séríu. Sú þáttarröð byrjar á S1 í lok jan.
Á RÚV er svo nýhafin séría um unga fjölskyldukonu sem fer í læknanám - Vital Signs. Sá þáttur er á fimmtudögum. Fyrsti þátturinn lofar góðu.
mánudagur, 1. janúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli